Gellurnar á Glaumbar

Aðalskvísurnar!

08.11.2006 13:23:44 / LIZA

Jæja ný síða

jæja gerði nýa síðu fyrir okkur stelpurnar bæði á hverfis og glaum þessi er orðin soldið úrelt hehehe ;) well nya síðan er í vinnslu so have fun ;)

http://blog.central.is/bargirls


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 17:14:44 / LIZA

Sorglegt!!!!!!

jaeja vid thurfum ad fara ad taka okkur mar theta er ekkert nema SAD SAD SAD.... well sko eg skal vinna i tvi tghegar eg kem heim thegar eg er komin med almennilegt lykklabord ekkert sma pyrrandi hehe ;) jaeja im out

Kv: Lisa Skvisa


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 21:17:49 / Vigga

KAFFIHÚSAKVÖLD???????

Jæja mér heyrist allar vera geim í kaffihúsakvöld....hvað segiði um næsta mánudagskvöld??  Það væri ótrúlega gaman að ná okkur öllum saman svona einu sinni, og mér finnst við verðum nú að ná því líka áður en fröken Lísa the skvísa heldur á vit ævintýranna í the Air Force takk fyrir!!!!

Hvað segiði um það?????   8|

8)



» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 14:36:23 / Ragga

ÁSKORUN!

Sælar dömur!:)

Það var svo ótrúlega langt síðan að einhver hafði bloggað að síðan var byrjuð að mygla!8| Ég ákvað því að hressa aðeins upp á hana því ekki veitti af!

Allavega hef ég voða lítið að segja annað en skólinn er byrjaður og ég er að fara að flytja!:) Þið verðið að klára slúðurpakkann því ég veit ekkert hvað ég á að segja!:)

Svo skora ég á allar að koma með eitt blogg á viku inn á þessa síðu svo hún falli ekki í gleymsku!:)

Ég og Vigga ætlum að kíkja út í bjór annaðkvöld og ég skora á þær sem geta að koma með!;)

Adios

Ragga:)

PS Ef einhver kann að gera banner (dótið þarna efst) er sá hinn sami hvattur til að hanna nýjan handa okkur svo allar geti verið með!:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:51:54 / Eva Púkaglott;)

Helgin sem er að líða

Góða kveldið börnin góð.  það er blessuð blíðan úti......8)

ég reikna passlega við því að nú liggja margir heima hjá sér með heljarinnar byggingarvinnu í hoved, 8|eftir þrusupartý í gær.  já nú er hún vigga okkar að fara að yfirgefa okkur, í 2 mánuði:( :cry:

En þessi helgi var rosaleg, hundleiðinlegt og súrt föstudagskvöld (allavega að mínu mati) og massa stuð í gær.  Ammlis/kveðjupartýið hennar Viggu, fullt fullt af skemmtilegu fólki:D, skemmtileg tónlist :haha: og ekkert vesen, nei nú lýg ég það líður ekki helgi án þess að að séu smá árekstrar, en ekki mikið um það....sem betur fer:$ :D

en nú er ég uppiskroppa með bull og málbeinið mjög slæmt af harðsperrum eftir helgina, svo ég kveð að sinni, (verð líka að halda áfram að vinna:|)

verið sæl að sinni og hittumst heil á dúndrandi djammi næsta fimmtudag

yfir og út


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 21:49:21 / Vigga

PARTÝ PARTÝ PARTÝ!!!

Næstkomandi laugardag, 24. júní ætla ég að halda upp á 22 ára afmælið mitt 3. júní sl., en þetta verður líka smá kveðjupartí þar sem ég er á leið til Parísar í tvo mánuði 2. júlí nk.  Fjörið byrjar kl 21 (eða eftir síðasta leik dagsins á HM 0 ) og verður að sjálfsögðu á Glaumbar (en ekki hvar...0 ).  Í boði verða veitingar í fljótandi formi meðan birgðir endast og jafnvel eitthvað í föstu formi líka 0  Svo er aldrei að vita nema eitthvað verði um live tónlist...ekki láta þig vanta!!!  0 

Sjáumst á Glaumbar á laugardagskvöldið!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 17:46:14 / LIZA

im back!

jæja stúlkur hvar eru þið únar að vera síðan í mai allavegna droppaði inn á æðislegu síðuna okkar hún þarf pínu breytingu finst ykkur ekki?

allavegna ég er komin í bæinn aftur  vá hvað það er gott að vera komin aftur mar það er ekki fyndið... ;) þannig ég sé meira af ykkur bara á næstunni ;)

Love you all!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 16:30:48 / Eva Púkaglott;)

Búbbírúbbí....

hæ elskurnar, hvað segjið þið?

vá hvað ég er búin að vera einkúka núna í næstum 10 daga:cry: eins og þið flestar vitið þá var ég í hálskirtlatöku, sem er nú svo sem ekki frásögufærandi, ég var þekkt á spítalanum sem sjúklingurinn með stóru nefkirtlana, ég held að hver einasta hjúkka og sjúkraliði sem ég talaði við vissu hver ég var út af þessu....;) :S :$ 

þessir dagar eru búnir að vera so upp og ofan, er samt búin að vera skökk mest allan tíman af verkjalyfjum, ekki grunaði mig að þetta væri sona HRIKALEGA vont. uppáhalds maturinn min þessa dagana eru brauð með kæfu eða súkkulaðismjöri, ís og barnamatur.  mikið úrval það:!:
 hins vega er þetta búið að vera algjör paradís fyrir fjölskylduna því eg er búin að ÞAGA 95% af tímanum, þær/þeir sem þekkja mig vita að ég á erfitt með að þaga í 1mínútu en að þaga í heila viku það eru undur og stórmerki, ;) 8| :!: þettta er efni í heimsmetabókina:haha::haha:

ég er að vonast til að geta komið og kíkt á ykkur um helgina, (þar sem ég er farin að tala aftur:$ :lol::klikk: ég er búin að sakna ykkar alveg obbóslega mikið :cry: :D
en nú veit ég ekkert hvað ég get sagt ykkur meira vonast til að sjá ykkur um helgina
bless á meðan.......


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:24:28 / sjöfn

hæj SÆTU!!!

ooo ég sakna ykkar so ógeðslega mikið að það er eilega bara fáránlegt :S

langar bara aðeins að láta heyra í mér ;) ég er uppá Geysi að vinna einsog brjálæðingur :S ekki gaman það... en þá fæ ég líka fullt af peningum :D Verst að ég geti ekki komið hverja helgi og djammað hjá ykkur... eða bara unnið með ykkur... ekki verra það :$  En hérna sætu... ef ykkur langar að kíkja uppá geysi í sumar þá er ég sko meira en til í að taka á móti ykkur ;) nóg af herbergjum sem þið getið gist í ef ykkur langar :D so er líka bara alltaf gaman að koma og fara á hestbak þegar er gott veður ;) haaa... skella sér sooo ;)

en jéjé... ég ætla að fara sofa... heyri vonandi í ykkur bráðum :P

fullt af knúsum frá Sjöfn :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 21:48:23 / María Rut

júró hvað!!!!!

Smá færsla í gangi þar sem ég  veit að sumir eru ábyggilega mjög sárir og fúlir yfir einu sem var að gerast rétt áðan, smá hint Silvía,humm.. :^):^):^)elsku Ragga og Vigga og auðvita ég við verðum bara að bjarga þessu júróvisíon, :haha::haha::haha:

Á næsta ári  verðum við með atriði og í Klappstírubúningum, úti í því landi sem vinnur keppnina, tökum þetta í nefið.. en ég held alla vega með Finnum núna og Svo Rússum því hann er svo mikið krútt, liggur við að hann fari úr lið við að begja sig svona mikið eins og hann gerði áðan( hann var númer 13 man ég)

en þetta er ástand, mikil sorg ábyggilega, en þið megið samt ekki dæma elsku Silvíu okkar, hun gerði eins og hún gat og enn meira en það,

En allir sem eru í Erfisdrykkju núna vegna þessa stóra taps ég bið að heils og love u alll

see ya, bæææ



» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 21:20:30 / Eva Púkaglott;)

jájá...

jæja komið þið sæl.......það er orðið ansi langt síðan maður hefur bloggað:$ það er búið að vera allt crasy að gera.....sniðugt að vera í 100% vaktavinnu og næturvinnu;) rosa gaman:lol: :)

en helgin sem er að líða var nú bara hin fínasta, lítið að gera á föstudaginn en alveg SLATTI á laugardaginn, og ég held að ALLIR starfsmenn glaumsins sem voru í fríi hafi verið í stemmningu, sem er bara gaman:) :D :haha:

á meðan þau skemmtu sér hlupum við steini og anný eins og brjálæðingar, við erum að tala um blóð svita og tár.  en þetta var mjög gaman samt sem áður,við anný fengum mikla athygli eða réttara sagt brjóstin okkar, því anný var so sniðug að merkja bringuna (rétt fyrir ofan brjóstaskoruna) á okkur CULT og það vakti líka þessa svaðalegu kátínu.:haha:

held að það sé best að fara að vinna aftur, er að klára seinustu vaktina niðrá  borgarspítala og get ekki beðið eftir að komast heim:S :lol:

ég veit heldur ekkert hvað ég að bulla meira,sjáumst spræk á morgun 8| :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 21:04:17 / Ragga

Næsti fimmtudagur tékk!:)

Eurovision drykkjuleikur

Dekka einn sopa ef:

  • þulur segir brandara.
  • Íslensku þulirnir(á bara við ef þeir eru tveir)grípa fram í fyrir hvor öðrum.
  • þulur hrósar einhverjum fyrir flutning
  • það sést í einhvern fána norðurlandanna
  • fyndin uppákoma kemur fyrir í flutningi atriðis.

Dekka tvo sopa ef:

  • Austurríski eða franski flytjadinn er með alpahúfu
  • kynnarnir reyna að vera fyndnir, bæði þulir og þeir sem eru á sviðinu
  • kvenkyns kynnirinn skiptir um kjól.
  • kynnarnir eyða tíma í samtal sem enginn getur fylgst með
  • einhver keppandanna er líkur einhverjum sem þú þekkir
  • Einhver keppendanna líkist einhverjum frægum.
  • Ef þulur minnist á að Noregur sé ekki einn búið að fá stig
  • Kýpur gefur Grikklandi 12 stig
  • Noregur gefur Svíþjóð stig

Drekka fjóra sopa ef:

  • Brandari frá þuli er fyndinn.
  • Söngvari lyftir handleggjum upp fyrir haus á meðan hann syngur.
  • Söngvari er mjög feitur
  • Flytjendur eru í hallærislegum fötum eða með hallærislega hárgreiðslu.
  • Söngvari frá Austur-Evrópu er með aflitað hár.
  • Það sést í geirvörtur í gegnum fötin
  • Flytjandinn frá Möltu er ekki loðinn á bringunni
  • Önnur lönd en enskumælandi flytja lögin á ensku
  • Flytjandi daðrar við myndavélina
  • Flytjandi er ekki frá landinu sem hann syngur fyrir
  • Frakkalnd gefur Bretlandi ekki stig.
  • Lagið sem fær 8 stig eða hæra er lélegt.
  • Bretland lendir í öðru sæti.
  • Flytjendur eru að tala í síma í græna herberginu meðan stigagjöfin fer fram.
  • Þulurinn hrósar íslensk hópnum fyrir frábæra frammistöðu.

Klára glasið ef:

  • Noregur gefur Svíþjóð ekki stig
  • Þýskaland gefur Austurríki 1 stig
  • Ísland vinnur
  • Írland vinnur
  • Ekki er minnst á frið, kærleika eða ást í þýska laginu
  • þulur skilur lítið í því af hverju íslenska lagið fái fá stig
  • Ef flytjandi er með yfirvaraskegg, sítt að aftan eða yfir 42 gamall

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 12:32:17 / María Rut

Hummm

Jæja allir saman, ég hef aldrei bloggað hérna áður, en alltaf er eitthvað fyrst.. en eins og er þá eru allir í prófum,, m.a Ég, Vigga, Ragga,..8)8)

Ég er komin með mikið leið á þessu og er mikið farin að hlakka til sumarsins, því það er mikil vinna framundan.

Vá ég veit ekkert hvað ég á að skrifa meir, en allir að mæta á mánudaginn 15.maí í partí til min,, próflokapartý.. held líka að það verði staffa djamm á Glaumnum... en svo er víst Júróvisión framundan, og Ragga er búin að plana þar hitting og allir að fara´út að borða á Vegamótum, en svo sjálfa stóru júróvisíon helgina verður flotta FRANSKA ÞEMAÐ í gangi.. bara flott8|8|8|

en ég er hætt núna, maður verður að fara að halda áfram að læra svo maður verður nú ríkur:D

María ~OUT~


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:18:31 / Vigga

Þemafréttir!

Hallóhalló, franskt þema in the house næsta laugardagskvöld!!! Búið ykkur undir að það verði mikið reynt við ykkur skvísur, miðað við þegar við vorum með það síðast...;)  Lýsi einnig eftir einhverri á bala eða veski það kvöld!

Svo er búið að taka ákvörðun um að láta sauma á okkur klappstýrubúninga!!!  :haha:  Spurning um að hafa þá skær eða dökkbleika og svarta, með Glaumbar framan á og nafni (kannski númeri líka...???  pant þá nr. 3 8) ) aftan á!  Mér finnst sniðið úr One Tree Hill helvíti fínt, hvað finnst ykkur?????

Kv. Vigga sem á að vera að læra fyrir próf en finnur sér ALLT annað að gera í staðinn ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 17:44:18 / Vigga

Aumingjarblogg eða hvað...?

Jæja stelpur nú verðum við að fara að gera eitthvað í þessu!!!!!  Við sem vorum svo geðveikt duglegar að blogga hérna fyrst...þetta er alveg dautt núna!  Reyndar eru próf og svona og vinnugeðveiki á öllum, en það þurfa nú allir að taka sér smá pásu frá því og hvað er þá betra en að blogga skvísublogg??? :D

Eins og svo oft áður auglýsi ég eftir þemahugmynd, í þetta skiptið fyrir Eurovisionkvöldið sem er laugardaginn 20. maí.  Held það sé samt gefið að ef Silvía Nótt kemst í lokakeppnina verðum við að endurtaka það þema, eða gera eitthvað annað sniðugt...? Ef okkur dettur ekkert nýtt í hug væri spurning um að endurtaka franska þemað, þar sem það var vægast sagt vinsælt hjá kúnnunum og þá aðallega þeim karlkyns ;)  Eða jafnvel klappstýrubúninga ef við náum að redda slíku????

Kommentiði nú skvísur og látið í ykkur heyra!!! :)

Kv. Vigga prófastelpa


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5